17.1.2008 | 15:34
Verður gert ráð fyrir óvarinni umferð?
Á undanförnum árum hefur ekkert tillit verið tekið til óvarinnar umferðar. Þessi samgönguæð er það mikilvæg að nauðsynlegt er að sem flestir geti nýtt sér hana.
Nú held ég að það sé kominn tími til þess að ráðamenn togi hausinn upp úr sandinum og átti sig á því að þeir sem ekki kjósa einkabílinn þurfa líka að komast greiðlega á milli staða.
Það er með öllu óþolandi að standa frammi fyrir því trekk í trekk að þurfa lengja leið sína á milli staða vegna þess að ekki sé gert ráð fyrir annarri umferð en akandi. Nægir að nefna öll þau fjölmörgu mislægu gatnamót sem reyst hafa verið undanfarin misseri sem í flestum, ef ekki öllum tilfellum eru með öllu ófær fyrir óvarða umferð.
|
Samþykkir Sundabraut í göngum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.1.2008 | 22:43
Tilraunaverkefni fjölskyldunnar - bíllaust heimili
Það ver nú á haustmánuðum sem ég benti konunni minni á að heimilisbíllinn okkar væri sífellt minna notaður. Heilu og hálfu vikurnar stóð hann fyrir utan heimilið engum til gagns og því settist ég niður og sló saman lauslega hvað hann kostaði okkur. Við áttum hefðbundinn fjölskyldubíl, Toyota Rav 4 sem reyndist okkur bara vel á meðan við áttum hann. Eins og svo margir aðrir voru við, ungt fólkið, með hann á lánum og því ærinn kostnaður í hverjum mánuði að reka bílinn.

Eftir að hafa slegið því saman að bíllinn gæti ekki kostað okkur minna en 550-600 þúsund árlega með öllu tilheyrandi kastaði ég því fram, meira í gríni en alvöru hvort við ættum ekki hreinlega að selja bílinn. Það væri ábyggilega hægt að finna ýmislegt skemmtilegra til að gera við þá aura sem færu í bílinn.
Viku seinna var bíllinn farinn, og þá aðallega fyrir tilstuðlan konu minnar. Hún var gallhörð á því að við þyrftum ekki bílinn og þegar ég hafði gert henni grein fyrir kostnaðinum sá hún ekki sólina fyrir því sem í bílinn fór.
Það er vægt til að orða tekið að fjölskyldur okkar beggja þótti þetta uppátæki vera hreinasta glapræði. Við nýbakaðir foreldrar, sonur okkar var þegar bíllinn var látinn gossa tæplega eins árs og því þótti fólki þetta algjör firring.
Það ætti kannski líka að koma fram í þessu samhengi að ég er bílasali sem gerir dæmið kannski enn undarlegra.
"Ha, áttu ekki bíl? - Bíddu hvernig kemstu á milli staða? - en þegar þú ferð með alla fjölskylduna? - Eða að versla?" Allt saman spurningar sem ég hef fengið ótrúlega oft seinustu mánuðina. Í sannleika sagt hef komist til vinnu alla daga í vetur á reiðhjólinu án teljandi vandræða. Við förum reglulega öll saman hér á heimilinu út, útréttum og verslum og gerum það sem þarf að gera. Allt á reiðhjólinu. Strákurinn okkar sem hélt upp á eins árs afmælið sitt í desember síðastliðnum er í sér vagni sem við drögum á eftir á okkur á hjólunum og er þar dúðaður eftir aðstæðum. 
Að versla er líka sáraeinfalt. Ég verð að vísu að játa það að verslunarferðirnar eru - og verða í raun að vera á margan hátt nokkuð skilvirkari. Við fórum til að mynda í núna um helgina í Bónus og versluðum til heimilisins fyrir vikuna - rétt um 15 þúsund krónur. Fimm pokar. Fyrir slíka ferð erum við með sérstakan farangursvagn sem bara þetta nánast allt saman. Það litla sem ekki komst þar fór í vagninn til sonar míns sem einnig er búinn fínu farangursrými aftan við sætin sem hann situr í.
Það er ekki laust við að frasinn "djöfulsins harka er þetta" sér farinn að þreytast aðeins líka. Ómar í eyrum mér um leið og blæs meira en 5 m/s og smá úrkoma gerir vart við sig. Málið er einfalt. Búa sig eftir aðstæðum, og þá er þetta ekkert mál. Ég eyði minni tíma í ræktinni en hef aldrei verið í betra formi.
Svona að lokum vil ég benda þeim sem fullyrða að þeir hafi ekki tíma til að hjóla að það þarf síst að taka lengri tíma þegar dæmið er reiknað til enda. Ekki man ég til þess upp á síðkastið að hafa þurft að leita að bílastæði, eða þurft að skafa. Ansi drjúgur tímasparnaður þar. Ég sjálfur hjóla tæpa 7 km í vinnu og á góðum degi tekur það mig innan 15 mínútur. Getur líka tekið allt upp 25 mínútur en einu get ég lofa að það er ekki háð árekstrum, traffík eða neinu slíku. Á bíl var ég frá 10 og uppí 15 mínútur að fara þessa leið, en um leið og ég þurfti að leita að stæði eða skafa eða gera eitthvað meira en bara að keyra beint á milli þá er þetta svipaður tími þegar allt kemur til alls.
Fyrir alla þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessu vil ég benda á heimasíðu Íslenska fjallahjólaklúbbsins sem er full af fróðleik og nýtilega efni fyrir byrjendur;
http://www.fjallahjolaklubburinn.is
Ef einhverjar spurningar vakna varðandi eitthvað sem ekki finnast svör við á síðunni er um að gera að smella spurningu inn á spjallborðið hjá okkur.
Það er alls ekki fyrir alla að hjóla allt árið um kring, en í ansi mörgum tilfellum mætti hvíla bílinn heima og hjóla eða ganga.
29.11.2007 | 16:44
1-0 fyrir Ísland
Það er góðs viti að menn séu að vakna. Næg skemmdarverk hafa þegar verið unnin á hálendi Íslands undanfarin misseri. Eitt skildi ég heldur aldrei í þessari umræðu um Norðurveg, Þegar erfitt getur reynst að halda öllum heiðum opnum á núverandi leið norður í land. Hvernig átti þá Norðurvegur að vera raunhæfur kostur í þeirri hæð sem hann er ?
Ég er enginn sérfræðingur um vegagerð en þetta er alltént það fyrsta sem ég spurði sjálfan mig. Fyrir utan þá staðreynd að þessi vegur hefði sjálfsagt að mestu verið nýttur undir þungaflutninga sem ég held að eigendur sumarbústaða í Grímsnesi hefðu ekki verið par hrifnir af. Að því Ógleymdu að þeir vegir sem þar eru fyrir eru á engann hátt undir þann aukna umferðarþunga búnir.
1-0 fyrir Ísland í þessu máli.
|
Landvernd leggst gegn lagningu heilsársvegur um Kjöl |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.11.2007 | 12:46
Ert þú tilraunadýr landsvirkjunar?
Í speglinum gær komu ansi merkilegar upplýsingar í þessu máli fram í dagsljósið. Fyrir svörm sat Þorseinn Jónsson sem svaraði spurningum fyrir hönd umhverfisstofnunar. Í viðtalinu við hann kom fram að langtíma áhrif af völdum brennisteinsvetni í andrúmslofti séu í raun óþekkt. Einungis ein mælistöð er nú í gangi sem mælir brennisteinsvetni og er hún stödd á Grensás. Þegar og ef Bitru- og Hverahlíðavirkjun verða teknar í gagnið verður losun þeirra á brennisteinsvetni fimmfalt meiri en öll náttúruleg losun á landsvísu.
Ég fyrir mína parta er ekkert sérstaklega hrifinn af því að vera gerður að einhversskonar tilraunadýri á vegum Landsvirkjunar. Þorsteinn Jónsson talaði einnig um að varhugavert gæti verið í framtíðinni að beina ferðamönnum inn á svæðið. Í því samhengi nefndi hann sérstaklega útivistar fólk sem færi um svæðið hjólandi eða gangandi, undir líkamlegri áreynslu eins og það var orðað, því það gæti hugsanlega haft skaðleg áhrif á viðkomandi.
Þetta þýðir fyrir mér að það sé ekki einungis búið að rústa þessu svæði útlitslega séð heldur getur verið meira og minna stórvarasamt að vera þarna á ferðinni. Það er í það minnsta ljóst að þessum fréttaflutningi morgunblaðsins og orðum Þorsteins Jónssonar ber ekki saman.
Svona í lokin þá verð ég hinsvegar að viðurkenna að ég hef séð umsögn Umhverfsstofnunar. Enda er þetta eingöngu byggt á þessu viðtalið við Þorstein í speglinum
Annað sem vert er að nefna er að aldrei hafa borist jafn margar athugasemdir við einstaka framkvæmd á vegum landsvirkjunar. Rétt um 400 athugasemdir ef mér skjátlast ekki. Þetta ætti heldur betur að þagga niðrí þeim landsbyggðarröddum sem ómuðu hvað hæst í kringum hryllinginn við Kárahnúka, og fullyrtu að Höfuðborgarbúar væru á móti öllum framkvæmdum nema þær væru þeim til góða.
|
Umhverfisstofnun telur umhverfisáhrif Bitruvirkjunar ekki verða umtalsverð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2007 | 00:31
Samgönguráðuneyti eða Bílamálaráðuneyti?
Þetta eru tölur sem koma ekki á óvart. Það virðist vera bara einn viðurkenndur samgöngumáti á Íslandi, einkabíllinn. Þeir sem kjósa aðra samgöngumáta þurfa að glíma við alls kyns tálma, hvort sem það er um að ræða hjólandi, gangandi eða þá sem kjósa almenningssamgöngur sem eru því miður rýrar hér á höfuðborgarsvæðinu.
Við búum því miður við þá óþægilegu staðreynd, að því er virðist, að hér á landi sé ekkert samgönguráðuneyti. Ég hélt að þegar við værum laus við fráfarandi bílamálaráðherra Sturla Böðvarsson að eitthvað myndi breytast, en það lítur ekki út fyrir það.
Svo vogar akandi fólk sér að hvarta yfir aðstöðuleysi. Staðreyndin er hinsvegar sú að það eru allar framkvæmdir í samgöngumálum miða að því greiða götu bílsins. Nu er ég ekki að segja að það eigi ekkert að gera í þeim málum en þegar ráðist er í gerð mislægra gatnamóta, jarðgangna og annarra mannvirkja er lágmark að gera ráð fyrir annarri óvarinni umferð í leiðinni. Það er óþolandi að fólki sem kýs vistvænar samgöngur sé refsað á þennan hátt.
Það sem fólk kannski áttar sig ekki á en ætti að vera öllum sýnilegt er að það er allar götur að breikka og stækka en bílunum fjölgar hins vegar bara hraðar en svo að þessar framkvæmdir haldi í við aukningu bílanna. Það er árviss viðburður að verða að fá haustfréttir af því að fólk sé fast í umferðinni þegar skólarnir byrja. Í öllum þessum teppum er það hending ef maður sér fleiri en einn í bíl. Við árslok árið 2006 voru skráðir rétt rúmlega 275.000 bílar á Íslandi. Bíllinn verður ekki leystur svo auðveldlega af hólmi en það er ekkert minna en sjálfsagt að bjóða fólki upp á valkosti.
|
Rekja má hátt í fimmtung losunarinnar til samgangna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2007 | 09:56
Hare-Krishna Geir
Nú held ég að kallinn sé endanlega að floppa. Held að mun nærtækara væri að líta í eigin barm. Það er jú hans, og annarra lögreglumanna að halda uppi lögum. Þetta snýst um það og ekkert annað. Sáluhjálp við einhverja langt leidda einstaklinga í gegnum trú á bara ekki heima í þessari umræðu.
Ég held að rót vandans felist að miklu leyti í því hversu illa lögreglustarfið er launað. Það fæst enginn til þess að vinna við þetta lengur nema einhverjir kónar með valdafíkn. Það hefur nú lengi verið sú gróusaga í gangi að "Löggan" sé samansafn fyrrverandi ólátabelgja og slagsmálahunda, sem þyrstir í að komast í átök. Ég veit það allavega að ekki myndi ég hafa áhuga á þessu starfi eins og það er launað.
Það ætla fara nálgast miðbæjarvandann með heilögu orði er einfaldlega bara röng nálgun að mínu mati.
|
Geir Jón telur trúboð leysa miðborgarvanda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.8.2007 | 23:19
Illkynja krabbamein heimsins
Bush er illkynja æxli. Það er eins og vitleysan taki engann enda. Það segir allt sem segja þarf um vitsmuni mannsins að hann er enn að bíða eftir aukafjárveitingu upp á 147 milljarða þegar hann biður enn um meira!
Hvað á þessi herferð gegn ósýnilegum óvinum að taka langann tíma? Og hvað hefur hún kostað ?
Ég rakst á nokkuð merkilega síðu sem svaraði í það minnsta annarri spurningunni minni, og hvort sem það er fullt mark takandi á henni að þá setur þetta hlutina heldur betur í samhengi.
Heimska er ólæknandi sagði einhver, sá mæti maður hafði lög að mæla.
|
Bush sagður ætla óska eftir 50 milljarða dala aukafjárveitingu vegna Íraksstríðsins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.8.2007 | 15:09
Eigum við að koma út að hjóla ?
Ég hjóla mjög mikið. Ég er samt ekki með akstursréttindi á vélhjól. Þar sem ég hef brennandi áhuga á reiðhjólum að þá hef ég margsinnis lent í því að ætla blanda mér í umræðu þar sem ég hef talið að væri verið að tala um reiðhjólaferðir þegar sá sem hefur orðið segir skyndilega, "En svo sprakk Nonna og ég bensínlaus, heyrðu, og Doddi með bilaða stimpilpakkningu" ( eða eitthvað annað tæknimál sem er til og á við vélhjól ).
Ef þeir væru að hjóla þyrftu þeir ekki að hafa tilskylin ökuréttindi. Þessir menn voru því að mínu viti að keyra eða aka, allavega klárlega ekki að hjóla neitt. Svo gremst mér mjög að heyra þá umræðu sem fram hefur farið á undanförnum misserum þar sem vélhjólamenn segja að það sé vegið að sér í umferðinni. Til þeirra sem hafa grenjað hvað mest vil bara segja þetta. Það er þó gert ráð fyrir ykkur í umferðinni. Ef þið viljið upplifa það að sjást ekki í umferðinni þá er bara að skella sér á reiðhjól og HJÓLA.
Ég læt hér fylgja með þrjár sérgreinar umferðarlaga sem taka yfir reið- og bifhjól sérstaklega:
VI. Sérreglur fyrir reiðhjól, bifhjól og torfærutæki.
REIÐHJÓL.
39. gr.
Hjólreiðamenn skulu hjóla í einfaldri röð. Þar sem nægilegt rými er mega tveir þó hjóla
samhliða, ef það er unnt án hættu eða óþæginda. Ef gefið er merki um framúrakstur mega
hjólreiðamenn eigi hjóla samhliða, nema aðstæður leyfi eða nauðsyn krefji.
Hjólreiðamaður skal hjóla hægra megin á akrein þeirri, sem lengst er til hægri. Akreinina við
hlið hennar má þó nota til framúraksturs, ef eigi er unnt að fara fram úr hægra megin.
Hjólreiðamaður, sem nálgast vegamót og ætlar að fara beint áfram eða beygja til vinstri, má
vera áfram hægra megin á vegi. Ætli hann til vinstri skal hann fara beint áfram yfir vegamótin og
beygja þá fyrst, þegar það er unnt án óþæginda fyrir aðra umferð. Gildir þetta þrátt fyrir umferðarmerki
eða önnur merki, nema þau séu sérstaklega ætluð hjólreiðamönnum.
Heimilt er að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu
eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum.
Hjólreiðamaður skal að jafnaði hafa fætur á fótstigum og a.m.k. aðra hönd á stýri.
Hjólreiðamaður má ekki hanga í öðru ökutæki á ferð eða halda sér í ökumann eða farþega
annars ökutækis.
Læsa skal reiðhjóli, sem lagt er, nema því sé lagt um stutta stund, og ganga þannig frá því, að
eigi stafi hætta eða truflun af.
40. gr.
Barn yngra en 7 ára má eigi hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem náð
hefur 15 ára aldri.
Eigi má reiða farþega á reiðhjóli. Þó má vanur hjólreiðamaður, sem náð hefur 15 ára aldri,
reiða barn yngra en 7 ára, enda sé barninu ætlað sérstakt sæti og þannig um búið að því stafi eigi hætta
af hjólteinunum.
Eigi má flytja á reiðhjóli þyngri hluti eða fyrirferðarmeiri en svo að ökumaður geti haft
fullkomna stjórn á reiðhjólinu og gefið viðeigandi merki. Eigi má heldur flytja á reiðhjóli hluti, sem
valdið geta öðrum vegfarendum óþægindum.
BIFHJÓL.
41. gr.
Bifhjóli má eigi aka samhliða öðru ökutæki.
Bifhjóli má eigi aka á gangstétt eða gangstíg, nema svo sem um ræðir í 2. mgr. 26. gr.
Á bifhjóli og hliðarvagni þess má eigi flytja fleiri farþega en ökutækið er ætlað til. Farþegi á
bifhjóli skal sitja klofvega.
42. gr.
Ökumaður létts bifhjóls skal hafa báða fætur á fótstigum eða fóthvílum og að jafnaði báðar
hendur á stýri.
Ökumaður létts bifhjóls má eigi hanga í öðru ökutæki á ferð eða halda sér í ökumann eða
farþega annars ökutækis.
Eigi má reiða farþega á léttu bifhjóli.
Að öðru leyti gilda ákvæði 41. gr. um létt bifhjól.
|
Hnattferð vélhjólabræðra senn á enda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.8.2007 | 17:32
Vald² = Spilling³
Þetta er bara í takt við þá tilfinningu sem ég hef haft. Á bakvið allar þær gróusögur sem hafa verið á kreiki hlaut að vera einhver smá sannleikur. Satt best að segja að þá finnst mér Lögreglan hafa fengið hræðilega útreið eftir atburði helgarinnar. Viðtal við Geir Jón Þórisson í Íslandi í dag ( eða var það kastljósið ) þar sem hann bar af sér allt í sambandi við mistök lögreglu í alvarlegu líkamsárásar máli sem átti sér stað fyrir utan skemmtistaði Sólon sýnir að mínu viti í hversu miklum ólestri starfsemi Lögreglunnar er í raun og veru.
Það bera það á borð fyrir framan alþjóð að ALLIR Lögreglumenn á vakt hafi verið uppteknir á sunnudeginum og því hafi öll mál helgarinnar farið á bið er bara fyndið að heyra. Það getur verið að annríki hafi verið mikið og vissulega alvarlegt þetta voðalega mál sem uppkom seinastliðinn sunnudag en ég spyr þá bara. Hvað hefði gerst ef það hefðu verið tveir menn með byssu þennan dag? Annar kannski bara að ræna banka? Hefði þá bara ekkert verið hægt að sinna því.
Lögreglan virðist vera þannig samansett að hún er ófær um að gera mistök. Það er allt öðrum að kenna þegar eitthvað bjátar á í hennar starfi.
Ég er svo handviss að þetta er bara toppurinn af ísjakanum. Mín tilfinning er sú að það finnist ekki spilltari starfsstéttir á fróni. Og allt saman þrífst þetta svo á þeim skattpeningum sem ég og þú vinnum linnulaust fyrir allann ársins hring.
|
Varðstjóri ákærður fyrir brot í opinberu starfi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.8.2007 | 00:22
Eftir limunum dansar höfuðið
Ég á líklega aldrei eftir að skilja þá stjórnarhætti sem viðhafðir eru vestan hafs. Ekki vantar framkvæmdagleðina það er alveg klárt. Ekki vottur af fyrirhyggju. Nóg til! kaupa kaupa - Fleiri byssur, stærri skip, öflugri orustuþotur og ekki bara fyrir okkur heldur alla vini okkar líka. Getum ekki skilið þá útundan. Hah .. er buddan tóm - Séra Jón, Það vantar meira kredit hérna, Gumma vantar byssu. Hann má ekki vera útundan.
Ég hef sagt það áður og segi það einu sinni enn. Bandaríkjamenn fengu gott og gilt tækifæri til þess að kjósa sér "mann" sem forseta sem þeir og gerðu þegar sú liðleskja sem nú er við völd var kjörin. Fyrir ótrúlegan tilstuðlan undarlegs skrifræðisbákns sem fulltrúakerfið virðist vera situr "Georg Tvívaff Runni" núna í aðalstólnum og berst við ósýnilega óvini sína víðsvegar um heiminn. Í það minnsta er ekki hægt að tala um neinn sérstakan árángur. Allavega er hann ekki í neinu samræmi við þær mannfórnir og fjáraustur sem hefur átt sér stað í valdatíð þessa manns.
Lengi getur vont versnað sagði einhver en ég held að botninunum sé náð með "Runnann" í fararbroddi fylkingar.
|
Flókin fjármál Bandaríkjanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




malacai
arnthorla
agustolafur
ekedvalds
gilsneggerz
hrannsa
hhk
hlynurh
kari-hardarson
lhm
mortenl
omarragnarsson
paul
hjolina
hallsteinn
vilberg
thuridur